LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali
[email protected] kynna:
Þilljuvellir 31, neðri hæð, Neskaupstað.Um er að ræða bjarta og opna íbúð á neðri hæð í tvíbýlishúsi. Íbúðin var öll gerð upp að innan fyrir nokkrum árum.
Komið er ínn í rúmgóðan forstofugang. Stofa og eldhús eru í sama rými en aðskilin með mjóum vegg.
Sjónvarpshol er við hlið eldhússins.
Við enda gangs er mjög rúmgott og snyrtilegt þvottahús sem mögulega má breyta í herbergi.
2 góð svefnherbergi eru í íbúðinni.
Baðherbergið er mjög rúmgott með baðkari og upphengdu klósetti og eru veggir og gólf flísalagt.
Utanhússklæðning á neðri hæðinni þarfnast orðið endurbóta og mögulega gluggar á neðri hæð líka en þak hússins virðist ágætt.
Eigandi efri hæðar hefur þegar klætt sína hæð að utan og skipt um glugga.