Lambeyrarbraut 5 aukaíb. möguleg , 735 Eskifjörður
54.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
8 herb.
214 m2
54.900.000
Stofur
3
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1959
Brunabótamat
87.200.000
Fasteignamat
41.400.000

LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali [email protected] kynna: 
Lambeyrarbraut 5, Eskifirði
Húsið er laust til afhendingar mjög fljótlega.

Mjög rúmgott og vel staðsett einbýlishús. Mögueiki á aukaíbúð á neðri hæð.
Húsið stendur við rólega botnlangagötu og er í næsta nágrenni við grunnskóla, bókasafn, leiksvæði, sparkvöll og dagvöruverslun.
Örstutt er út í náttúruna og mjög stutt á skíðasvæðið í Oddskarði.
Húsið hefur fengið gott viðhald og verið klætt og einangrað utanfrá og stutt er síðan þak var endurnýjað. Innbrenndur litur er á þaki og utanhússklæðningu.
Gengið er upp breiðar tröppur að aðalinngangi. Fallegt járnhandrið er meðfram tröppum og dyrapalli.
Komið er inn í ágætlega rúmgóða flísalagða forstofu. Inn úr henni er stigi niður á neðri hæðina.
Efri hæðin skiptist í rúmgott hol, 2 samliggjandi stofur með fallegri tvíbreiðri hurð á milli, 3 rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og búr.
Gott viðarparket er á stofum, holi og svefnherbergjum á efri hæðinni.
Í eldhúsi er dúkur á gólfi og falleg eldri innrétting, pláss er fyrir uppþvottavél í eldhúsinu. Búr með dúk á gólfi er inn af eldhúsinu.
Baðherbergi er flísalagt, bæði veggir og gólf og þar er baðkar með sturtu. 
Þegar komið er niður stigann á neðri hæðina er komið beint inn í eldhús með eldri innréttingu.
Sérinngangur er inn á neðri hæðina og er lítil útigeymsla við hlið hans.
Flísar eru á gólfi forstofu neðri hæðar.
Inn úr forstofunni er lítil snyrting með flísum á gólfi. 
Á neðri hæðinni eru tvö rúmgóð herbergi og er plastparket á gólfum þeirra.
Í herbergjunum eru stórir skápar með glerhurðum og var þar rómað steinasafn Sörens og Sigurborgar sem til þessa hafa verið einu eigendur hússins.
Stórt þvottahús með máluðu gólfi er á neðri hæðinni. Þar mætti útbúa góða baðaðstöðu fyrir neðri hæðina.
Hitaveita er í húsinu.
Staðfest leyfi frá Fjarðabyggð til að gera bílastæði inni á lóðinni liggur fyrir.
Húsið stendur á eignarlóð sem er skráð 600 fermetrar.

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.