Miðdalur 2 , 735 Eskifjörður
56.000.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
3 herb.
158 m2
56.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2007
Brunabótamat
67.100.000
Fasteignamat
45.600.000

LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali [email protected] kynna:
Miðdalur 2, Eskifirði. Þægilegt einnar hæðar endaraðhús með bílskúr.
3 herbergi (2 rúmgóð svefnherbergi og stór stofa). Einstaklega fallegur og skemmtilegur garður með heitum potti og útisturtu (setja þarf nýja stöng og haus á sturtuna).
158,7 fm, raðhús ásamt bílskúr við Miðdal á Eskifirði í Fjarðabyggð. 
Íbúð er skráð 120 fm og bílskúr 38,7 fm, alls 158,7 fm.
Núverandi eigendur hafa gert miklar og skemmtilegar breytingar á íbúðinni og garðinum sem bæta notagildið og hefur ekkert verið til sparað í því
Einangrað hefur verið milli íbúða og veggurinn þykktur um 15 cm sem kemur ekki niður á stærð íbúðarinnar sem er öll mjög rúmgóð.
Eldhúsinnrétting er nýleg og stór. Stofa og sjónvarsphol hafa verið gerð að einu rými samliggjandi eldhúsinu. Nýlegt parket er á gólfi.
Dyr eru úr stofu og út á sólpall.
Garðurinn er pardís með heitum potti og góðum sólpalli. Girt hefur verið kring um allan garðinn.
Hurð úr í garðinn var sett á þvottahúsið og veggurinn að garðinum timburklæddur. Þvottahúsið var fært út í bílskúrinn.
Myndir segja meira en mörg orð en áhugasömum er bent á að bóka tíma í skoðun því eigin augu átta sig best á þessari skemmtilegur eign.
Mikið af innbúi fylgir með við kaupin og eru myndir af þeim hlutum hér meðfylgjandi.
Lýsing eignar:
Falleg og þægileg íbúð í 5 íbúða raðhúsalengju.
Forstofa með skáp. Flísar á gólfi.
Hol, stofa og eldhús eru samliggjandi.
Eldhús, með stórri innréttingu og eyju. Flísar á gólfi. Dyr út á sólpall eru við hlið eldhúss.
2 rúmgóð svefnherbergi, bæði með skápum.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf. Lítil innrétting. Sturta og baðkar.
Þvottahús hefur verið gert að inngangi frá garði og þvottaaðastaðan færð í bílskúrinn..
Bílskúri með geymslu innúr er staðsettur í 5 bílskúra lengju á lóðinni. Geymsluloft er í bílskúrnum og þvottahúsaðstaða.
Hitaveita er í húsinu.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.