LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali
[email protected] kynna:
Fjarðarbraut 37A, Kirkjubær, Stöðvarfirði.Um er að ræða afhelgaða kirkju sem er í rekstri sem gistiheimili, en getur hentað sem sumarhús og jafnvel heilsárshús.
Húsið var endurbyggt á núverandi stað árið 1925 og stendur á frábærum útsýnisstað.
Í dag er svefnaðstaða fyrir 10 manns í húsinu. Tvíbreitt rúm er á kórloftinu, 2 svefnsófar á neðfi hæð og einnig eru hægt að sofa á dýnum.
Í dag er turn hússins í útleigu fyrir tæknibúnað.
Húsið hefur verið kynt með lausum rafmagnsblásurum en þilofnar munu fylgja með við sölu.