LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali
[email protected] kynna:
Hafnarbyggð 43, Vopnafirði.Þægilegt einnar hæðar einbýli sem leynir á sér hvað stærð varðar.
Komið er inn í forstofu sem er opin inn í stofu á vinstri hönd og eldhús beint af augum.
Inn úr stofunni er herbergi.
3 önnur svefnherbergi eru í húsinu og eru 2 þeirra samliggjandi.
Við eldhúsið sem er frekar rúmgott er rúmgóð geymsla/búr á aðra hönd.
Baðherbergi með sturtu er við hlið forstofunnar.
Lítil geymsla er í kjallara hússins.
Nýlegir gluggar eru í húsinu (settir í 2023).
Umhverfi hússins er fallegt og sjórinn handan götunnar.