Framnesvegur 56, 101 Reykjavík (Miðbær)
139.900.000 Kr.
Raðhús
5 herb.
142 m2
139.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1925
Brunabótamat
70.050.000
Fasteignamat
91.350.000

Styrmir Þór Sævarsson löggiltur fasteignasali og LF-fasteignasala kynna:

Fallegt raðhús á 3 hæðum með aukaíbúð á frábærum og fjölskylduvænum stað við Framnesveg í gamla Vesturbænum. Eignin er skráð 142,3 fm. en nýlegur ca 18 fm. sólskáli/geymsla er utan fermetratölu. Vesturbæjarskóli er beint á móti hinu megin við götuna auk þess sem leikskóli, Vesturbæjarlaug, miðbær Reykjavíkur og öll helsta þjónusta er í stuttu göngufæri. Skv. seljanda voru flestir gluggar endurnýjaðir fyrir ca 2 árum, þak húss málað fyrir nokkrum árum, sér rafmagnstafla sett í kjallara 2024, garður hellulagður 2025 og sólskáli/geymsla byggður fyrir ca 2 árum. Skv. seljanda endurnýjuðu Veitur nýlega heita- kaldavatns- og skólplagnir í hverfinu.

Miðhæð:
Forstofa er flísalögð.
Hol er flísalagt. Úr holi er parketlagður stigi upp á efstu hæð hússins.
Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð. Viðar parket á gólfi. Fastir skápar á vegg fylgja.
Eldhús er opið við stofu. Falleg hvít innrétting. Gott skápa- og vinnupláss. Helluborð. Ofn í vinnuhæð.
Geymsla með tengi fyrir þvottavél er undir stiga.

Efsta hæð:
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Gólfhiti. Góður speglaskápur. Sturtuklefi. Handklæðaofn. Var endurnýjað fyrir nokkrum árum.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott og bjart. Viðarparket á gólfi. Lausir skápar sem mega fylgja.
Svefnherbergi II er mjög rúmgott og bjart. Viðarparket á gólfi. Lausir skápar sem mega fylgja.
Svefnherbergi III er rúmgott og bjart. Viðarparket á gólfi.

Kjallari:
Í kjallara er 49,5 fm. aukaíbúð með sérinngangi.
Flísar á gólfi.
Stofa/svefnherbergi í opnu rými.
Gert ráð fyrir eldhúsi en gömul innrétting var nýlega fjarlægð.
Baðherbergi er rúmgott með glugga, innangengri sturtu og upphengdu klósetti.
Skv. seljanda var nýlega sett rafmagnstafla og raf- og vatnslagnir endurnýjaðar í aukaíbúð.

Auðvelt væri að opna aftur á milli kjallara og efri 2ja hæðana. Áður var opið á milli og stigi upp.

Nánari upplýsingar veitir Styrmir Þór Sævarsson löggiltur fasteignasali í síma 846-6568 eða á netfanginu [email protected].

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.