Langholtsvegur 16, 104 Reykjavík (Vogar)
89.900.000 Kr.
Fjölbýli
5 herb.
110 m2
89.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1946
Brunabótamat
49.110.000
Fasteignamat
72.700.000

Styrmir Þór Sævarsson löggiltur fasteignasali og LF-fasteignasala kynna:

Falleg og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð auk aukaíbúðar í bílskúr. Aukaíbúð í bílskúr var uppgerð fyrir 4-5 árum skv. seljanda og lítur mjög vel út. Skv. seljanda var dren endurnýjað fyrir um 2 árum auk þess sem þak var málað og yfirfarið fyrir 2-3 árum. Samkomulag er á milli íbúða um skiptingu á lóð en samkvæmt því hefur þessi eign stóran afgirtan sérafnotareit með rúmgóðum nýlegum sólpalli, grasfleti og steyptri verönd. 2 bílastæði fyrir framan bílskúr. Íbúðin er skráð 83,8 fm og aukaíbúðin í bílskúr skráð 26,9 fm. Geymsluskúr á lóð fylgir. Fasteignamat 2026 er 79.950.000 kr.

Hol með flísum á gólfi.
Stofa er rúmgóð og björt, parket á gólfi.
Eldhús er rúmgott með hvítri fallegri innréttingu. Flísar á gólfi. Mikið skápa- og vinnupláss. Uppþvottavél fylgir. Skápur og skenkur á vegg á móti innréttingu fylgja líka.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðum skápum. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II og svefnherbergi III voru áður eitt herbergi sem búið er að skipta upp í tvö en bæði eru enn rúmgóð. Opinn skápur í öðru þeirra.
Baðherbergi er snyrtilegt. Flísalagt í hólf og gólf. Nýtt upphengt klósett og klósett kassi. Handklæðaofn. Eftir á að mála eða flísaleggja klósettkassa.

Aukaíbúð í bílskúr.
Aukaíbúðin var tekin í gegn fyrir 4-5 árum að sögn seljenda og lítur mjög vel út.
Hún skiptist í stofu, eldhúskrók, baðherbergi með nýjum opnanlegum glugga, anddyri og svefnloft.
Flísar á gólfi í anddyri og eldhúsi en parket á stofu. Undir tröppum upp á svefnloft er gott geymslurými.

Tvö bílastæði fyrir framan bílskúr fylgja eigninni.

Nánari upplýsingar veitir Styrmir Þór Sævarsson löggiltur fasteignasali í síma 846-6568 eða á netfanginu [email protected].

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.